Freyvangsleikhúsið
Halaleikhópurinn
Leikfélagið Hallvarður Súgandi
Leikfélag Vestmannaeyja
Leikhópurinn Lotta
Leynileikhúsið
Hugleikur
Leikfélag Dalvíkur
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hólmavíkur
Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Kópavogs
Leikfélag Mosfellssveitar
Leikfélag Sauðárkróks
Leikfélag Selfoss
Leikfélag Ölfuss
Leikfélagið Grímnir
Leikfélagið Peðið
Stúdentaleikhúsið
| Listasýningin Hnykill | |
|
Hnykill er heiti á nýju verki í leikstjórn Margrétar Vilhjálmsdóttur og var hún frumsýnd 6.nóvember s.l. Hér er um að ræða kraftmikla og skemmtilega sýningu sem leiðir áhorfandann í ferðalag um mismunandi skynjanir heilans og óravíddir undirmeðvitundar. Sýningin er sýnd í gömlu og hráu vöruhúsnæði úti á Gróttu að Bygggörðum 5. Húsnæðið hefur hópurinn valið að kalla „Norðurpólinn“.Í þessari sýningu leiða ýmsir listamenn saman hesta sína undir stjórn Margrétar Vilhjálmsdóttur sem er listrænn stjórnandi ásamt Katrínu Þorvaldsdóttur og Ríkeyju Kristjánsdóttur. Fjöldi leikara, tónlistar -og myndlistarfólks koma að verkinu. Áhorfandinn leggur af stað í lítið ferðalag þar sem hann hittir fyrir persónur sem segja honum ótrúlegar sögur um söknuð, ástarsorg, eftirsjá og gleði. Sýningin kemur víða við og tengir okkur við ólíkar skynjanir heilans og leyndardóma hans, ævintýri undirmeðvitundarinnar þar sem munur á draum og veruleika er ekki alltaf skýr. Leikstjóri Hnykils er, eins og áður sagði, Margrét Vilhjálmsdóttir. Margrét hefur tekið mjög virkan þátt í sýningum með líku sniði á síðustu árum. Í ár leikstýrði hún sýningunni „Orbis Terræ-ORA“ í Þjóðmenningarhúsinu og árið 2007 setti hún upp, ásamt Vatnadansmeyjafélaginu Hrafnhildi, sýninguna „Gyðjan í Vélinni“ í varðskipinu Óðni við mjög góðar viðtökur og var sú sýning tilnefnd til Grímunnar sama ár. Ólöf Arnalds og Helgi Rafn Ingvarsson semja tónlist og hljóðmynd verksins. Katrín Þorvaldsdóttir sér um hönnun og yfirumsjón á leikmynd og Ríkey Kristjánsdóttir sér um búningahönnun. Lýsing er í höndum Arnars Ingvarssonar. Sviðslistamenn eru Ásgerður Júníusdóttir, Vilborg Ólafsdóttir, Ólöf Ingólfsdóttir, Berglind Ágústsdóttir, Halldóra Malin Pétursdóttir, Magnea Valdimarsdóttir, Magnús Guðmundsson, Gríma Kristjánsdóttir, Halla Ólafsdóttir, Védís Ólafsdóttir, Sigurður Björn Blöndal, Hannes Óli Ágústsson, Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, Árni Salómonson og Katrín Þorvaldsdóttir. Innsetningar í verkinu annast nokkrir listamenn, þar á meðal Bjarni Massi, Kristjan Zaklinsky, Marta Macuga, Karolina Pavilka, Júlía Embla Katrínardóttir, Viktor Pétur Hannesson og Karolina Bogusławska og fl. Myndatöku annaðist Vera Pálsdóttir. Miðasala í síma 5959170 á Bókasafni Seltjarnarness eða í síma 8650170. |
|